söluvörur
Bolir með merki félagsins til sölu:
Í tilefni 40 ára afmælis Íslenskrar Grafíkur lét félagið gera boli með merki félagsins sem var hannað af Jóni Engilberts (1908-1972) í kringum 1954. Jón Engilberts var einn þeirra listamanna sem telst til annarrar kynslóðar myndlistarmanna, og var í flokki þeirra sem sneru frá landslagsmálverkinu og hóf að fást við raunsæi og hversdagsleika svo sem sjá má í myndum hans af sjávarþorpum og íbúum þeirra. Eftir að Jón koma að utan úr námi til Íslands árið 1940, varð hann mikilvægur í íslenska myndlistarsamfélaginu, en hann kenndi mikið og var brautryðjandi í grafíklist hérlendis og vann mikið við myndskreytingar.Bolirnir fást í tveimur gerðum, svörtum síðaerma sem eru aðsniðnir fyrir konur en í hefðbundnum stíl fyrir herra. Hvítu bolirnir eru stutterma og lógóið er eitlítið minna en á þeim svörtu.
Bolirnir eru til sölu hjá félaginu og verða til sölu í Norræna húsinu í haust og jafnvel í bókabúðinni Iðu.