Tryggvagötu 17, hafnarmegin
101 Reykjavík
Sími 552 2866
P.O. Box 857, 121 Reykjavík MAP islenskgrafik@gmail.com

FOLLOW ON FACEBOOK
yfirstandandi
24/04/2013
Beta Gagga sýnir Snertingu hjá Íslenskri grafík

Á sumardaginn fyrsta, 25. apríl kl.16, verður sýning Elísabetar Stefánsdóttur (Beta Gagga) opnuð í sýningarsal Íslenskrar grafíkur, Sýningin heitir Snerting en þetta er hennar sjötta einkasýning. Snerting er afar sterkur og mikilvægur þáttur í samskiptum. Oft getur klapp á öxl eða vinaleg handarsnerting sagt meira en þúsund orð. Einnig getur snerting, í einstökum tilvikum, nánast gert kraftaverk. Hún getur verið áhrifarík þegar fólk þjáist af ótta eða sorg. Við finnum tilhneigingu til að faðma þá sem eiga um sárt að binda. Þá falla allar hömlur og við snertum hinn sorgmædda hiklaust. Upplifun fólks á annara snertingu, faðmlagi, knúsi og vinahót, byggist oftast á þeirra eigin upplifun af snertingu. Það sem einum finnst þægileg og eðlileg finnst öðrum óþolandi áreitni en þó ber að snerta fólk af nærgætni og virðingu. Snertingu er öflugt tjáningarform og segir jafnvel allt sem segja þarf.  Nærið líkamann með nærgætni og umhyggju í gegnum snertingu og þú ert að næra sálina. Sýningin stendur til 5. maí og er opin á hefðbundnum opnunartíma sýningarsalarins fimmtudaga - sunnudaga 14-18. Ókeypis aðgangur.
yfirstandandi
2/04/2013
Anne Thorseth og Þóra Sigurðardóttir 2. - 14. apríl - Sequences Off Venue

Verk sýningarinnar eru unnin á pappír og eru teikningar, stafræn prent og þurrnál Anne og Þóra hafa unnið saman áður, en samstarfsverkefni þeirra, sýningarnar “My Place/Your Place” hafa sótt kveikju í víðáttu íslensks landslags, í ákveðna þætti í menningu (bændakúltúr) Dana, safn gamalla danskra leirmuna úr jarðleir, sem þar voru framleiddir til heimabrúks fram í byrjun 20. aldar – en einnig í teikninguna sem slíka. Síðan 2005 hafa viðfangsefni verkefnisins My Place/Your Place birst á ýmsum stöðum á Íslandi og í Danmörku, m.a. í Suðsuðvestur í Keflavík, í Klokholm Suður Sjálandi, í Galleri Lars Borella Kaupmannahöfn, í Röðli á Skarðsströnd og í Listasal Mosfellsbæjar. Sýningin að þessu sinni snýst um skyld viðfangsefni, vekur spurningar um efnið og tengsl þess við rými, tíma og hreyfingu. Þær eru kallaðar fram með grafískum vísunum í beinar eða ímyndaðar tengingar við jörð; í jörðina sem ýmist er skilgreind sem heimkynni okkar, eða sem landslag, menning eða einfaldlega efniviður; hráefni. Í því samhengi mætti vísa í ritverk franska heimspekingsins Henri Lefebvre (1901-1991). Meðal áhrifaríkra kenninga hans í ritinu La production de l'espace (1974) eru hugmyndir um tengslin milli rýmis og efnis. Þar er vakin athygli á framleiðsluvörum samtímans og upplifun okkar á þeim. Möguleikinn á vélrænum fullkomleika sveipar hlutina dulúð þegar kemur að því að íhuga uppruna, framleiðsluaðferðir og endingu. Hvort sem litið er á framleiðslu, meðhöndlun eða tengsl við hráefni náttúrunnar, þá hefur hulu verið varpað yfir uppruna hlutarins sem kemur í veg fyrir að notandinn skilji hann að fullu. Um leið eru tengslin slitin milli náttúrunnar og hlutarins. Sjá vefsíður listamannanna hér www.annethorseth.dk/ www.thorasig.is/ www.this.is/thora/ (Úr texta Ann-Sofie Gremaud í sýningarskrá 2011 um sýningu Þ.S. í Listasal Mosfellsbæjar Vegir efnisins.). Sýningin er hluti af Sequences off venue og stendur til 14. apríl og er opin daglega 14-17. Allir velkomnir. Sjá meira um Sequences her http://sequences.is/