fyrri
9/04/2010
Nikulás Sifússon - Vatnslitamyndir 10-25 april

Laugardaginn 10.apríl kl. 14 verður opnuð sýning á vatnslitamyndum eftir Nikulás Sigfússon í Grafiksafni Íslands Tryggvagötu . Um er að ræða landslagsmyndir af ýmsum stöðum á Íslandi bæði sunnanlands og norðan en einnig af hálendi Íslands. Myndirnar er málaðar á síðustu tveimur árum. Nikulás hefur um áratugaskeið lagt stund á vatnslitamálun og hefur haldið allmargar einkasýningar og tekið þátt í samsýningum. Sýning stendur til 25.apríl og er opin fimmtudaga til sunnudaga frá kl.14-18. Ókeypis aðgangur.

8/11/2010
Íslensk Grafík í Svíðþjóð 9. -21. nóvember

Þann 9. nóvember nk. verður samsýning 13 félaga úr félaginu Íslensk grafík opnuð hjá Grafíska Selskabet Hornsgatan 6 í Stokkhólmi, Svíþjóð. Þetta er boðssýning á vegum sænska grafíkfélagsins og er hluti af sýningarröð þar sem öllum grafíkfélögum á Norðurlöndum er boðið að sýna í tilefni af 100 ára afmæli þeirra. Sýningarnefnd íslenskrar grafíkur valdi sýnendur fyrir hönd félagsins og endurspeglar valið þær áherslur sem eru í íslenskri grafík um þessar mundir. Sýnendur eru: Anna Snædis Sigmarsdóttir, Bragi Ásgeirsson, Daði Guðbjörnsson, Elva Hreiðarsdóttir, Guðmundur Ármann, Ingiberg Magnússon, Iréne Jensen, Kristin Pálmadóttir, Magdalena Margrét Kjartansdóttir, Rikhard Valtingojer, Sigrid Valtingojer, Sigriður Melrós Ólafsdóttir og Valgerdur Hauksdóttir. Sýningin stendur til 21. nóvember 2010. Dagskrá afmælisárs “Grafiska Selskabet” er viðamikil. Haldinn er grafík þríæringur í Sænsku Listaakademíunni 30.10-12.12.2010, áhersla er á sögu grafíkur í öðrum sölum þar og í galleríi félagsins eru haldnar sýningar með öllum grafíkfélögum á Norðurlöndum eins og áður hefur komið fram. Það er mikill heiður fyrir félagið Íslensk grafík að vera boðið að sýna og taka þátt í þessum hátíðarhöldum.

8/10/2009
Ný sýning - Rikki og Zdenek

Tvær nýjar sýningar opna næstkomandi laugardag 10. október kl. 15 í sal félagsins. Það eru þeir Rikharður Valtingojer og Zdenek Patak sem sýna ný verk. Rikharður sýnir nýjar steinþrykksmyndir og sýning Zdeneks, Steinn og fjall, inniheldur stórar teikningar. Báðir listamennirnar vinna og búa á Stöðvarfirði en Rikharður rekur Grafíksetrið á Stöðvarfirði. Sýningarnar eru opnar fimmtudaga - sunnudaga 14-18 allar helgar til 25. október næstkomandi. Allir velkomnir.

7/10/2010
Remix móment 2009 - Erna G S

Sýningin Remix móment 2009 verk eftir Ernu GS verður opnuð þann 9. október kl 16.00-18.00 í sal félagsins. Erna sýnir málverk, ljósmyndir og innsetningu. Augnablikið/mómentið, þjóðfélagsástand og persónulegt líf er viðfangsefni sýningarinnar. Hér heldur hún áfram tilraunum sínum með samþættingu ólíkra listmiðla og viðfangsefnis sem hún hefur verið að vinna að frá árinu 2004. Sýningin stendur til 24 október og opnunartími er fimmtudag til sunnudags frá kl. 14.-18.00 Erna stundaði myndlistanám við Myndlista og Handíðaskóla íslands 1985-1989, framhaldsnám við Slade School of Fine Art í London 1990-1992, auk náms í kennsluréttindum við Listaháskóla Íslands 2003-2005. Þetta er 10 einkasýning hennar og hefur hún tekið þátt í fjölda samsýninga, bæði hér á landi og víða erlendis frá árinu 1990. Frekari upplýsingar um listamanninn er að finna á heimasíðu hennar http://www.simnet.is/egs62

7/06/2012
Nálin stingur mann - Vilborg Bjarkadóttir

Sýningin „Nálin stingur mann“ verk eftir Vilborgu Bjarkadóttur verður opnuð laugardag 9. júní kl. 17 í sal Íslenskrar Grafíkur, Tryggvagötu 17 hafnarmegin. Sýningin er innsetning sem samanstendur af textabrotum og textílskúlptúrum. Í skúlptúrunum takast á mjúkt efni og hart: textíll og ólíkar tegundir nála. Sjálfstæður en þó í gagnvirku samtali er textinn eins og dagbókabrot eða hugleiðingar sjúklings sem þjáist af pest, en nær sér af henni. Hugsanlega þökk sé nálastungum. Textinn kallast á við skúlptúrana sem eru meðal annars gerðir úr þunnu teygjuefni, nálastungunálum og kaktusum. Saman mynda þessi ólíku efni eina heildræna sýn sem vísar bæði í lækningamátt kínverskra nálastungulækninga og harðar kaktusanálar eyðimerkurinnar. Vilborg Bjarkadóttir útskrifaðist með BA gráðu í myndlist frá Listaháskóla Íslands árið 2007. Í vetur stundaði hún nám í leirmótun í Myndlistarskóla Reykjavíkur. Auk þess hefur hún numið bókenntafræði og þjóðfræði við Háskóla Íslands. Sýningunni stendur yfir frá 9. júní - 17. júní. Fimtudag til sunnudags frá 14-18. Aðgangur ókeypis.

7/03/2012
10-25. mars Losun - Gunnhildur Þórðardóttir

Næstkomandi laugardag 10. mars kl. 16 í sal Íslenskrar grafíkur verður sýningin Losun verk eftir Gunnhildi Þórðardóttir opnuð. Á sýningunni eru glæný myndverk, grafíkverk og skúlptúrar þar sem listamaðurinn hefur unnið með efnivið sem myndi annars lenda í Sorpu. Listamaðurinn er mjög hlynnt endurvinnslu enda búin að vera að endurvinna ýmislegt frá barnæsku og endurspeglast það í notkun hennar á hráefnum fyrir listaverkin þar sem koma við sögu vínkassar, textíll, afskurðir af ýmsum toga og notðar matarumbúðir. Það sem sameinar listaverkin er ekki síst enduvinnslan heldur einnig litirnir og formin. Gunnhildur lauk BA (HONS) í listasögu og fagurlistum frá Listaháskólanum í Cambridge árið 2003 og MA í liststjórnun frá sama skóla árið 2006. Hún hefur haldið nokkrar einkasýningar nú síðast sýninguna Víravirki & Blóðsteina sem fram fór á heimili listamannsins á Björtum dögum í Hafnarfirði í júní í fyrra, sýningin Slóðir í Mjólkurbúðinni á Akureyri í apríl 2011 en áður hefur hún sýnt á Skörinni hjá Handverk og hönnun (2011), Hulduorka á Ljósanótt (2009), Svartir Þræðir í sal Íslenskrar grafíkur (2008), Samræmi í Suðsuðvestur (2006) og sýnt í Danmörku (2004) og Englandi (2002-2003). Hún hefur tekið þátt í mörgum samsýningum bæði á Íslandi og erlendis m.a. í Norræna húsinu, Hafnarborg, Þjóðminjasafninu, galleríBOXi, samsýningum Íslenskrar Grafíkur í Þýskalandi og í Cambridge ásamt KIC Art listahópnum. Gunnhildur starfaði með lista- og hönnunarfyrirtækinu Lúka Art & Design og hefur unnið lengi fyrir félagið Íslensk grafík og er meðlimur í SÍM. Sýningin stendur til 25. mars og er opin fimmtudaga – sunnudaga frá 14-18. Það má með sanni segja að það verði listamannsspjall allan þann tíma sem sýningin stendur yfir enda situr listamaðurinn sjálfur yfir sýningunni en formlegt listamannsspjall verður sunnudag 11. mars kl. 15. Sýningin er mjög barnvæn þar sem börnin geta spreytt sig í að búa til listaverk með sýninguna sem innblástur og er að sjálfsögðu ókeypis aðgangur. sjá nánar á vefsíðu listamannsins www.gunnhildurthordardottir.com

7/02/2010
Grafíkvinur 2010 - Soffía Sæmundsdóttir

Um grafíkvinamynd sína Slóðir segir Soffía: Ég hef ekki unnið eða sýnt hefðbundna grafík lengi þó ég hafi verið í félaginu frá fyrstu sýningum mínum. Það er alltaf eitthvað við þrykkið sem heillar mig og spennan sem fylgir því að lyfta pappírnum af plötunni sem maður er að prenta af og sjá hvað hefur komið á hann er ótrúleg. Við gerð þessarar myndar vann ég myndina hratt á pappír, eins og skissu. Henni var varpað á ljósnæma plötu sem ég svo þrykkti af. Það kom mér á óvart hvað vinnuaðferðin var sjálfsprottin og mér finnst þetta gefa mér óendanlega möguleika til áframhaldandi vinnslu. Mér finnst það áhugavert að myndin varpast á plötuna með ljósi því ég er um þessar mundir upptekin af tímabrotinu þegar ljósið fellur á.

Grafíkvinur 2010 - Kristín Gunnlaugsdóttir

Grafíkvinaverk sitt nefnir Kristín “Hvíld”. Verkið er lithographia, 24x16 cm að stærð þrykkt á 250 gr. Laurier pappír. Verkið er hluti af myndaröð á sýningunni “Veggteppi” í Grafíksafni Íslands sem hún hefur unnið undanfarna mánuði . Þar leitast hún við, að eigin sögn, að sýna tilfinningu eins umbúðalausa og hægt er með myndmáli og teikningu sinni. Teiknaða tilfinningu sem afhjúpar jafnt varnarleysi sem lífsþorsta. Sjá meira um Kristínu á www.kristing.is

6/10/2012
Hver er sinnar gæfur smiður - Áslaug Jóna Sigurbjörnsdóttir

Sýningin Hver er sinnar gæfu smiður með verkum eftir Áslaugu Jónu Sigurbjörnsdóttur verður opnuð í sal Íslenskrar grafíkur laugardaginn 6. október kl. 16. Á sýningunni eru ný verk, klippimyndir, sem eru prentaðar á striga. Áslaug Jóna er fædd 13. ágúst 1954. Hún stundaði nám við Myndlista- & handíðaskóla Íslands 1984 – 1987 og útskrifaðist þaðan af Grafíkdeild. Áslaug hefur tekið þátt í nokkrum samsýningum en þetta er hennar fyrsta einkasýning. Sýningin er opin fimmtudaga til sunnudags milli kl. 14:00 & 18:00 Sýningunni lýkur 21.október

5/08/2010
Glansmynd - Þura 6-22 ágúst 2010

Á sýningunni Glansmynd kynnir Þuríður Sigurðardóttir, Þura, ný málverk sem hún hefur unnið á þessu ári. Hún heldur áfram rannsóknum sínum á náttúrunni í sínu nánasta umhverfi og hvernig takast megi á við hana í málverki. Áður hefur hún fengist við nánast ofurraunsæisleg verk þara sem hún rýnir í svörðinn. Nú beinir hún sjónum upp í himininn þar sem losnar um taumhald raunsæisins. Um verkin segir m.a. í sýningarskrá: “Eitt er að lengja eftir sumri um hávetur, eins og Þura sýndi fram á með sýningu á málverkum sínum af blómlegu illgresi, Óboðnum gestum, í kuldakasti í janúar árið 2003. Nú í blíðviðrinu lokar hún sig aftur á móti af inni á vinnustofu til þess að takast á við vetrarnóttina og sýnir útkomuna í algleymi sumars. Leiðin liggur inn í veröld ímyndunaraflsins þar sem minningar blandast vonum og væntingum og raunveruleikinn kemur varla við sögu nema í aukahlutverki. Þar leynist ýmislegt undir óteljandi lögum af örþunnum lit sem augað greinir ekki við fyrstu sýn, tindrandi stjörnur, dansandi norðurljós, ís og hjarn sem endurkastar fölri birtu. Í verkunum er tilfinning sem leitar jafnt út í óravídd himingeimsins sem inn í ranghala hugarfylgsnanna.” thura@thura.is www. thura.is www.umm.is

5/08/2009
Listhjúkkur með Bingó

Listhjúkkurnar Anna Hallin og Óska Vilhjálmsdóttir með sýninguna Bingó í sal Íslenskrar Grafíkur 15. - 25. janúar. Þær hafa starfað saman undir heitinu Art Nurses og hafa m.a. sýnt í Listasafni ASÍ. Þær hafa saumað saman útrásarvíkinga og ráðamenn og verður meðal annars hægt að vinna þá í verðlaun því þær stöllur ætla að hafa bingó tvo laugardaga í röð. Bingó stjórar verða Urður Gunnarsdóttir og Guðni Tómasson og í verðlaun verða dúkkur af útrásarvíkingum. Til mikils er því að vinna.

Grafíkvinur 2009 - Vetrarnótt

Kristján Davíðsson er Myndlistarmaður ársins hjá Grafíkvinum, Íslenskri grafík, 2009. Kristján er fæddur árið 1917 og er einn virtasti myndlistarmaður þjóðarinnar. Það er mikið ánægjuefni að kynna Kristján sem Myndlistarmann ársins hjá Grafíkvinum, verk hans er línuteikning þar sem hann fæst við tímann og hraðann. Verkið er litografíuverk (steinþrykk) sem þrykkt er á 170g Hahnemuhle pappír í stærðinni 20x33.5cm. Upplagið er 110 eintök og kostar hvert eintak 10.000.- fyrir Grafíkvini. Kynning á verki Kristjáns fer fram í Grafíksafni Íslands-sal íslenskrar grafíkur, Tryggvagötu 17, hafnarmegin, á Safnanótt föstudaginn 13. febrúar frá kl. 19.00-24.00.

5/03/2010
Construction Affection - Andrew Burgess 6.-21. mars 2010

Sýningin Construction Affection verk eftir Andrew Burgess opnar laugardaginn 6. mars kl. 17. Sýningin verður opin fimmtudaga - sunnudaga kl.14-18 og stendur til 21. mars. Sýningin er hluti af dagskrá HönnunarMars. Andrew Burgess fæddur árið 1977 í Quebec city, Kanada. Andrew Burgess er menntaður arkitekt frá McGill University School of Architecture í Montreal, Kanada. Hann hefur meðal annars unnið fyrir Andreas Angelidakis í New York, með listamönnum og hönnuðum í París t.d. Yi Zhou, Vier5, Nicolas Dahan, Olivier Peyricot, Miltos Manetas. Andrew sýndi verkið Another Thing á Alþingishúsinu þar sem mynd af húsinu var varpað fullkomlega á sjálfa bygginguna sem hvarf inn í svæfandi samhengi hlutanna. Andrew hefur einnig sýnt videóverkið Andrewandyou.com eða Scintilla Villas í versluninni KronKron. Andrew sýndi einnig stórt videóverk í Hörpu nýja Tónlistarhúsinu í Reykjavík á síðastliðinni Menningarnótt. Þar sem myndir af öðrum byggingum var varpað á óklárað húsið.

4/10/2011
Fyrirbrigði - Jude Griebel

Sýningin Fyrirbrigði með verkum eftir kanadíska listamanninn Jude Griebel verður opnuð næstkomandi laugardag 8. október kl. 15 í sal Íslenskrar grafíkur. Á sýningunni verða bæði þrykk og teikningar sem listamaðurinn hefur valið úr verkum unnum á síðastliðnum tíu árum. Myndirnar sýna oft raunalegar fígúrur í undarlegri og skrýtinni atburðarrás. En eins og titillinn gefur til kynna er listamaðurinn að fjalla um hið yfirskilvitlega þar sem samruni líkamlegrar og ímyndaðrar upplifunar mætast. Myndirnar eru innblásnar af teikningum Viktoríu tímabilsins en hugmyndaheim sinn sækir hann meðal annars innblástur í gamlar ljósmyndir og teikningar, sviðsmyndir frá leikhúsum og jafnvel low budget hrollvekjur. Jude Griebel er fæddur 1978 og útskrifaðist með Bachelor of Fine Art frá Emily Carr University of Art and Design í Vancouver árið 2003. Verk eftir hann eru bæði í einkasöfnum og í eigu listasafna og hefur hann sýnt víða. Sýningin stendur til 23. október. Listamaðurinn verður með spjall við sýningargesti sunnudag 9. október kl. 15. Allir velkomnir og ókeypis aðgangur. Nánari upplýsingar á www.judegriebel.com

4/05/2011
Speglun - List án landmæra 5. - 8. maí

Félagið Íslensk grafík í samstarfi við List án landamæra stóð að þrykknámskeiði í einþrykki dagana 12. – 13. apríl á verkstæði félagsins í Hafnarhúsinu. Eitt af markmiðum List án landamæra er að koma list fólks með fötlun á framfæri og koma á samstarfi á milli fatlaðs og ófatlaðs listafólks. Nokkrir meðlimir félagsins önnuðust listsmiðjuna þær Irene Jensen, Elísabet Stefánsdóttir, Díana Hrafnsdóttir og Gunnhildur Þórðardóttir. Mikil stemmning myndaðist á námskeiðinu og er augljóst að þar eru mjög hæfileikaríkir einstaklingar á ferð. Þeir sem tóku þátt voru Hanna Lilja Bjarnadóttir, Kristján Kristjánsson, Hugrún Dögg Þorfinnsdóttir, Ísak Óli Sævarsson, Sigrún Huld Hrafnsdóttir og Hildur Ýr Viðarsdóttir. Öll voru þau að kynnast grafíktækni í fyrsta sinn þrátt fyrir að nokkur þeirra séu mjög virk í listsköpun. Afrakstur námskeiðsins verður hægt að nálgast á örsýningunni Speglun í sal félagsins dagana 5. – 8. maí og er opið kl. 14-17. Aðgangur ókeypis en sýningin opnar á fimmtudag kl. 18. Sýningin er á dagskrá Listahátíðarinnar List án landamæra en dagskrá hennar má kynna sér á www.listanlandamaera.blog.is. Nánar um listamennina: Ísak Óli er við nám í myndlistaskóla Reykjavíkur og sýnir verk sín í Hoffmannsgalleríi 6.maí. Hann hefur haldið fjölda sýninga og heldur úti heimasíðunni: www.isakoli.com. Sigrún Huld hefur einstakan myndheim og sýnir verk sín á Listahátíðinni List án landamæra 30.apríl á Mokka kaffi. Sigrún hefur haldið fjölmargar einkasýningar og tekið þátt í mörgum samsýningum. Hugrún Dögg er meðlimur í sönghópnum Blikandi stjörnum sem hefur hlotið margar viðurkenningar, innlendar og erlendar. Hugrún stundar einnig nám við Fjölmennt. Kristján Kristjánsson stundar nám við Fjölmennt í Reykjavík og reynir fyrir sér í listinni. Hildur Ýr er nemandi í Ármúlaskóla og stundar tónlistarnám. Hún er einnig fastur gestur í Hinu húsinu. Hanna Lilja Bjarnadóttir starfar hjá 365 prentmiðlum. Hún hefur lagt stund á myndlistarnám hjá Listasmiðju Lóu og tekið þátt í samsýningum.
Next page Speglun - List án landmæra 5. - 8. maí