Tryggvagötu 17, hafnarmegin
101 Reykjavík
Sími 552 2866
P.O. Box 857, 121 Reykjavík MAP islenskgrafik@gmail.com

FOLLOW ON FACEBOOK
fréttir
8/12/2010
JÓLA HVAÐ… LISTAVERK OG GLAÐNINGUR Á AÐVENTU

Næstkomandi sunnudag, 12. desember verður opið hús hjá Íslenskir grafík frá 12-17. Þá munu félagsmenn Íslenskrar Grafíkur bjóða gestum að líta við í galleríið og verkstæðið og horfa á listamennina útbúa listaverk úr RESCUE PAPER það er endurunnum pappír s.s. merkispjöld, gjafa og jólakort og handgerðar bækur. Með þessu er ætlunin að skapa smá aðventu stemningu en hægt verður að versla varninginn. Allir velkomnir.
fréttir
8/11/2010
Íslensk Grafík í Svíðþjóð 9. -21. nóvember

Þann 9. nóvember nk. verður samsýning 13 félaga úr félaginu Íslensk grafík opnuð hjá Grafíska Selskabet Hornsgatan 6 í Stokkhólmi, Svíþjóð. Þetta er boðssýning á vegum sænska grafíkfélagsins og er hluti af sýningarröð þar sem öllum grafíkfélögum á Norðurlöndum er boðið að sýna í tilefni af 100 ára afmæli þeirra. Sýningarnefnd íslenskrar grafíkur valdi sýnendur fyrir hönd félagsins og endurspeglar valið þær áherslur sem eru í íslenskri grafík um þessar mundir. Sýnendur eru: Anna Snædis Sigmarsdóttir, Bragi Ásgeirsson, Daði Guðbjörnsson, Elva Hreiðarsdóttir, Guðmundur Ármann, Ingiberg Magnússon, Iréne Jensen, Kristin Pálmadóttir, Magdalena Margrét Kjartansdóttir, Rikhard Valtingojer, Sigrid Valtingojer, Sigriður Melrós Ólafsdóttir og Valgerdur Hauksdóttir. Sýningin stendur til 21. nóvember 2010. Dagskrá afmælisárs “Grafiska Selskabet” er viðamikil. Haldinn er grafík þríæringur í Sænsku Listaakademíunni 30.10-12.12.2010, áhersla er á sögu grafíkur í öðrum sölum þar og í galleríi félagsins eru haldnar sýningar með öllum grafíkfélögum á Norðurlöndum eins og áður hefur komið fram. Það er mikill heiður fyrir félagið Íslensk grafík að vera boðið að sýna og taka þátt í þessum hátíðarhöldum.
fréttir
8/10/2009
Ný sýning - Rikki og Zdenek

Tvær nýjar sýningar opna næstkomandi laugardag 10. október kl. 15 í sal félagsins. Rikharður Valtingojer sýnir nýjar steinþrykksmyndir og sýning Zdenek Pataks Steinn og fjall sýna stórar teikningar. Sýningarnar eru opnar fimmtudaga - sunnudaga 14-18 allar helgar til 25. október næstkomandi. Allir velkomnir.
fréttir
8/04/2010
Ný sýning - Vatnslitamyndir eftir Nikulás Sigfússon opnar 10. apríl

Laugardaginn 10.apríl kl. 14 verður opnuð sýning á vatnslitamyndum eftir Nikulás Sigfússon í Grafiksafni Íslands Tryggvagötu . Um er að ræða landslagsmyndir af ýmsum stöðum á Íslandi bæði sunnanlands og norðan en einnig af hálendi Íslands. Myndirnar er málaðar á síðustu tveimur árum. Nikulás hefur um áratugaskeið lagt stund á vatnslitamálun og hefur haldið allmargar einkasýningar og tekið þátt í samsýningum. Sýning stendur til 25.apríl og er opin fimmtudaga til sunnudaga frá kl.14-18. Ókeypis aðgangur.
fréttir
7/10/2010
Remix móment 2009 - Erna G S

Sýningin Remix móment 2009 verk eftir Ernu GS verður opnuð þann 9. október kl 16.00-18.00 í sal félagsins. Erna sýnir málverk, ljósmyndir og innsetningu. Augnablikið/mómentið, þjóðfélagsástand og persónulegt líf er viðfangsefni sýningarinnar. Hér heldur hún áfram tilraunum sínum með samþættingu ólíkra listmiðla og viðfangsefnis sem hún hefur verið að vinna að frá árinu 2004. Sýningin stendur til 24 október og opnunartími er fimmtudag til sunnudags frá kl. 14.-18.00 Erna stundaði myndlistanám við Myndlista og Handíðaskóla íslands 1985-1989, framhaldsnám við Slade School of Fine Art í London 1990-1992, auk náms í kennsluréttindum við Listaháskóla Íslands 2003-2005. Þetta er 10 einkasýning hennar og hefur hún tekið þátt í fjölda samsýninga, bæði hér á landi og víða erlendis frá árinu 1990. Frekari upplýsingar um listamanninn er að finna á heimasíðu hennar http://www.simnet.is/egs62
fréttir
7/06/2012
Sýning Vilborgar Bjarkadóttur 9.-17.júní

Næstkomandi laugardag, þann 9. júní kl. 17, verður sýningin „Nálin stingur mann“ með verkum eftir Vilborgu Bjarkadóttur opnuð í sal Íslenskrar Grafíkur, Tryggvagötu 17 hafnarmegin. Sýningin er innsetning sem samanstendur af textabrotum og textílskúlptúrum. Í skúlptúrunum takast á mjúkt efni og hart: textíll og ólíkar tegundir nála. Sjálfstæður en þó í gagnvirku samtali er textinn eins og dagbókabrot eða hugleiðingar sjúklings sem þjáist af pest, en nær sér af henni. Hugsanlega þökk sé nálastungum. Textinn kallast á við skúlptúrana sem eru meðal annars gerðir úr þunnu teygjuefni, nálastungunálum og kaktusum. Saman mynda þessi ólíku efni eina heildræna sýn sem vísar bæði í lækningamátt kínverskra nálastungulækninga og harðar kaktusanálar eyðimerkurinnar. Vilborg Bjarkadóttir útskrifaðist með BA gráðu í myndlist frá Listaháskóla Íslands árið 2007. Í vetur stundaði hún nám í leirmótun í Myndlistarskóla Reykjavíkur. Auk þess hefur hún numið bókenntafræði og þjóðfræði við Háskóla Íslands. Sýningunni stendur yfir frá 9. júní - 17. júní. Fimtudag til sunnudags frá 14-18. Aðgangur ókeypis.
fréttir
7/03/2011
Þrykkt samsýning í Listasafni Reykjanesbæjar

Sýningin Þrykkt verður opnuð í Listasal Reykjanesbæjar næstkomandi laugardag kl. 15 og er unnin í samstarfi við Listasafn Reykjanesbæjar og Aðalstein Ingólfsson sem er sýningarstjóri. Á sýningunni eru verk eftir félaga úr félaginu Íslensk grafík auk þess sem sögu grafíkur á Íslandi eru gerð skil. Verkin á sýningunni voru sýnd hjá Grafíska Sallskapet í Stokkhólmi, Svíþjóð í tilefni af 100 ára afmæli þeirra í nóvember sl. en sögusýningin var áður til sýnis í sal Íslenskrar Grafíkur í nóvember 2009 - janúar 2010 í tilefni af 40 ára afmæli félagsins. Nú hefur sýningin verið sett upp í Listasal Reykjanesbæjar en eftirtaldir listamenn eiga verk á sýningunni: Anna Snædis Sigmarsdóttir, Bragi Ásgeirsson, Daði Guðbjörnsson, Elva Hreiðarsdóttir, Guðmundur Ármann Sigurjónsson, Ingiberg Magnússon, Iréne Jensen, Karólína Lárusdóttir, Kristin Pálmadóttir, Magdalena Margrét Kjartansdóttir, Nicole Pietrantoni, Rikhard Valtingojer, Sigrid Valtingojer, Sigriður Melrós Ólafsdóttir, Sigrún Eldjárn og Valgerdur Hauksdóttir. Sýningin stendur til 17. apíl. Safnið er opið virka daga frá 12-17 og um helgar 13-17.
fréttir
6/10/2012
Hver er sinnar gæfur smiður - Áslaug Jóna Sigurbjörnsdóttir

Sýningin Hver er sinnar gæfu smiður með verkum eftir Áslaugu Jónu Sigurbjörnsdóttur verður opnuð í sal Íslenskrar grafíkur laugardaginn 6. október kl. 16. Á sýningunni eru ný verk, klippimyndir, sem eru prentaðar á striga. Áslaug Jóna er fædd 13. ágúst 1954. Hún stundaði nám við Myndlista- & handíðaskóla Íslands 1984 – 1987 og útskrifaðist þaðan af Grafíkdeild. Áslaug hefur tekið þátt í nokkrum samsýningum en þetta er hennar fyrsta einkasýning. Sýningin er opin fimmtudaga til sunnudags milli kl. 14:00 & 18:00 Sýningunni lýkur 21.október
fréttir
6/03/2012
Losun - Gunnhildur Þórðardóttir

Næstkomandi laugardag 10. mars kl. 16 í sal Íslenskrar grafíkur verður sýningin Losun verk eftir Gunnhildi Þórðardóttir opnuð. Á sýningunni eru glæný myndverk, grafíkverk og skúlptúrar þar sem listamaðurinn hefur unnið með efnivið sem myndi annars lenda í Sorpu. Listamaðurinn er mjög hlynnt endurvinnslu enda búin að vera að endurvinna ýmislegt frá barnæsku og endurspeglast það í notkun hennar á hráefnum fyrir listaverkin þar sem koma við sögu vínkassar, textíll, afskurðir af ýmsum toga og notðar matarumbúðir. Það sem sameinar listaverkin er ekki síst enduvinnslan heldur einnig litirnir og formin. Gunnhildur lauk BA (HONS) í listasögu og fagurlistum frá Listaháskólanum í Cambridge árið 2003 og MA í liststjórnun frá sama skóla árið 2006. Hún hefur haldið nokkrar einkasýningar
fréttir
6/02/2011
Safnanótt 2011 - 11. febrúar

Á Safnanótt verður fjölbreytt dagskrá að vanda hjá Íslenskri Grafík. Listamaður Grafíkvina verður kynntur í sal félagsins en í ár er það Ríkharður Valtingojer, sjá verk hans að neðan. Gestum gefst tækifæri til að fylgjast með listamönnum að störfum á grafíkverkstæðinu og einnig verða til sýnis verk listamanna Grafíkvina undanfarinna ára. Sýningin stendur yfir helgina 11. - 13. febrúar. Á Safnanótt föstudagskvöldið er opið kl. 19:00 - 24:00 en laugardag og sunnudag kl. 14:00 - 18:00. Á laugardaginn verður svo opin listasmiðja fyrir börn frá kl. 14:00 - 16:00. Sýningunni lýkur kl. 18:00 á sunnudag. Aðgangur ókeypis.
fréttir
5/08/2010
Þura opnar nýja sýningu 6. ágúst kl. 17 -19

Á sýningunni Glansmynd kynnir Þuríður Sigurðardóttir, Þura, ný málverk sem hún hefur unnið á þessu ári. Hún heldur áfram rannsóknum sínum á náttúrunni í sínu nánasta umhverfi og hvernig takast megi á við hana í málverki. Áður hefur hún fengist við nánast ofurraunsæisleg verk þar sem hún rýnir í svörðinn. Nú beinir hún sjónum upp í himininn þar sem losnar um taumhald raunsæisins. Sýningin stendur til 22. ágúst og er opið fim. – sun. 14 -18.
fréttir
5/03/2010
Ný sýning opnar laugardaginn 6. mars - Andrew Burgess

Sýningin Construction Affection verk eftir Andrew Burgess opnar laugardaginn 6. mars kl. 17. Sýningin verður opin fimmtudaga - sunnudaga kl.14-18 og stendur til 21. mars. Sýningin er hluti af dagskrá HönnunarMars. Andrew Burgess fæddur árið 1977 í Quebec city, Kanada. Andrew Burgess er menntaður arkitekt frá McGill University School of Architecture í Montreal, Kanada. Hann hefur unnið mikið með listamönnum og hönnuðum bæði á Íslandi og erlendis. Andrew er þekktur fyrir stór videóverk sem hann varpar á táknrænar byggingar eða hálfkláruð hús.
fréttir
5/02/2010
Grafíkvinur 2010 - Soffía Sæmundsdóttir

Soffía (f.1965) útskrifaðist úr grafíkdeild Myndlista- og handíðaskóla Íslands 1991 og lauk Mastersgráðu í málun frá Mills College í Oakland, Kaliforníu 2001-2003. Hún hefur haldið fjölmargar einkasýningar og tekið þátt í samsýningum heima og erlendis, á síðasta ári m.a. í Artótekinu og í Galleri Krebsen í Kaupmannahöfn. Soffía hefur þegið vinnustofudvöl í Leighton Studio’s í Banff Centre í Kanada og á Skriðuklaustri í Gunnarsstofu. Henni hafa hlotnast margvíslegar viðurkennningar fyrir list sína, m.a. ferða- og dvalarsjóð Muggs, Jay De Fao verðlaunin(2003)og Joan Mitchell Painting and sculpture award(2004) kennd við samnefndar stofnanir. Hún var verðlaunahafi í Winsor og Newton alþjóðlegri málverkasamkeppni 2000. Verk hennar eru í eigu fjölmargra opinberra aðila og stofnana Soffía vinnur jöfnum höndum við málverk og teikningar og í seinni tíð einnig í grafík.
fréttir
5/02/2010
Grafíkvinur 2010 - Kristín Gunnlaugsdóttir

Kristín útskrifaðist úr Myndlista- og handíðaskóla Íslands árið 1987 og lá leiðin beint í framhaldsnám til Ítalíu. Þar lærði hún m.a. íkonagerð í klaustri í Róm og stundaði nám í Ríkisakademíunni í Flórens árin 1988-1993. Kristín hefur síðustu fimmtán árin haldið margar einkasýningar og tekið þátt í mörgum samsýningum hér heima og erlendis. Hún hefur hlotið ýmsa styrki og viðurkenningar og hlotið nokkrum sinnum listamannalaun frá Menntamálaráðuneytinu, síðast árið 2009. Kristín hefur verið valin bæjarlistamaður Akureyrar og einnig bæjarlistamaður Seltjarnarness 2008. Eftir Kristínu má finna verk í eigu helstu listasafna landsins, opinberra stofnana, kirkna og fjölda einstaklinga. Verk Kristínar hafa gegnum tíðina verið aðallega stór málverk á striga, eggtemperur á tré, íkonar og teikningar. Námsárin voru lituð af áherslum samtímalistar og minimalisminn var allsráðandi. Sunnar í álfunni kynntist Kristín ólíkum stefnum og svo varð að tækni og hugmyndaheimur miðevrópskrar miðaldahefðar varð sá skóli sem hafði einna mest mótunaráhrif á hana. Djúpstæður áhugi á dulspeki og dýpt vitundarinnar hefur verið undirliggjandi tónn í verkum hennar, aðskilnaður mannsins við Guð, einsemd hans og leit.
fréttir
5/02/2010
Listamenn Grafíkvina 2010 - Safnanótt

Listamenn Grafíkvina í ár eru að þessu sinni tveir: Soffía Sæmundsdóttir sem er félagsmaður og Kristín Gunnlaugsdóttir myndlistarmaður. Þær verða báðar kynntar á Safnanótt í félaginu að Tryggvagötu 17, Hafnarhúsinu, hafnarmegin. Kristín Gunnlaugsdóttir mun opna sýninguna sína Veggteppi og Soffía mun vinna á verkstæði félagsins. Íslensk Grafík hefur frá upphafi tekið þátt í Safnanótt og opið frá 18 -24. Ókeypis aðgangur. Sýningun Kristínar Gunnlaugsdóttur lýkur sunnudaginn 28. febrúar. Sjá upplýsingar um myndlistamennina á vefsíðum þeirra: www.soffias.is www.kristing.is
Next page