Atburðir
3/11/2009
Grafísk listsmiðja 15. nóvember kl. 14

Grafísk listmiðja fyrir alla fjölskylduna - allir geta þrykkt. Tveir meðlimir Íslenskrar Grafíkur ætla að þrykkja á einfaldan hátt með fjölskyldum í Norræna húsinu t.d. á jólakortin eða eitthvað allt annað. Ókeypis.

20/07/2009
40 ára starfsafmæli

Félagið Íslensk Grafík fagnar 40 ára starfsafmæli í ár og hefur að þvi tilefni gert ýmislegt sem af er þessu ári og mun áfram standa fyrir ýmsum viðburðum eða taka þátt í atburðum skipulögðum af öðrum aðilum. Meðal viðburða sem Íslensk Grafík hefur tekið þátt í það sem af er þessu ári ber fyrst að nefna Listahátíð í Reykjavík þar sem félagið stóð að merkilegum viðburði, Lifandi List á Lækjartorgi, þann 23. maí síðastliðinn. Þá var félagið að kynna starfsem sína með rúmlega þrátíu meðlimi sem bæði sýndu verk sín og þrykktu á pressur félagsins auk þess að vera með gjörning á miðju torginu en það var tekið 25 m langt þrykk af gangstéttinni með handknúnum valtara. Mikil stemmning var og góð mæting og ekki skemmdi veðrið fyrir. Þá stóð félagið fyrir yfirlitssýningu á verkum Kjartans Guðjónssonar sem er eini núlifandi stofnandi félagsins. Auk Listahátíðar í ár hefur félagið tekið þátt í Vetrarhátíð í Reykjavík í nokkur ár með því að kynna Myndlistarmann ársins hjá Grafíkvinum árlega.
Myndlistarmann ársins í ár var einn elsti núlifandi listamaður þjóðarinnar, Kristján Davíðsson (f.1917) en verk hans er línuteikning þar sem hann fæst við tímann og hraðann. Verkið er litografíuverk (steinþrykk) sem þrykkt er á 170g Hahnemuhle pappír í stærðinni 20x33.5cm.
Þá mun félagið seinna í ár hafa veglega afmælissýningu í Norræna húsinu 7. nóvember til 5. desember auk þess að hafa sögusýningu um félagið og grafík á Íslandi í sal félagsins. Þá mun félagið efna til málþings um grafík á Íslandi í samstarfi við Þjóðminjasafn Íslands og Prentarafélagið. Þetta verður nánar auglýst síðar.

2/08/2009
Kristján Davíðsson - Myndlistarmaður ársins 2009 hjá Grafíkvinum

Kristján Davíðsson er Myndlistarmaður ársins hjá Grafíkvinum, Íslenskri grafík, 2009. Kristján er fæddur árið 1917 og er einn virtasti myndlistarmaður þjóðarinnar. Það er mikið ánægjuefni að kynna Kristján sem Myndlistarmann ársins hjá Grafíkvinum, verk hans er línuteikning þar sem hann fæst við tímann og hraðann. Verkið er litografíuverk (steinþrykk) sem þrykkt er á 170g Hahnemuhle pappír í stærðinni 20x33.5cm. Upplagið er 110 eintök og kostar hvert eintak 10.000.- fyrir Grafíkvini.

16/08/2009
Málþing um grafík á Íslandi

Málþing um grafík á Íslandi sem Íslensk Grafík stendur fyrir í samstarfi við Þjóðminjasafn Íslands og Prentarafélag Íslands verður haldið í fyrirlestrarsal Þjóðminjasafnsins föstudaginn 23. október kl. 15-17. Allir velkomnir. Dagskrá nánar auglýst síðar. http://www.natmus.is