Tryggvagötu 17, hafnarmegin
101 Reykjavík
Sími 552 2866
P.O. Box 857, 121 Reykjavík MAP islenskgrafik@gmail.com

FOLLOW ON FACEBOOK
Fyrirlestur
3/11/2009
Sýningarstjóraspjall 8. nóvember kl. 15

Sunnudag 8. nóvember kl. 15 mun Aðalsteinn Ingólfsson hafa sýningarstjóraspjall um sýninguna Íslensk Grafík 40 ára í Norræna húsinu. Aðalsteinn (f.1948) nam bókmenntir og listasögu í Skotlandi, Ítalíu og Svíþjóð. Hann hefur lengi verið einn helsti listfræðingur þjóðarinnar og ritað fjölda bóka um íslenska list og listamenn. Ókeypis aðgangur.
Fyrirlestur
21/09/2009
Málþing um grafík á Íslandi

Þann 23. október næstkomandi kl. 13-15 verður haldið málþing um grafík á Íslandi í Þjóðminjasafni Íslands. Það er Íslensk Grafík sem efnir til þessa ásamt Þjóðminjasafni Íslands og Prentarafélagi Íslands. Erindi frá Gunnhildi Þórðardóttur, Valgerði Hauksdóttur og Rikharði Valtingojer fyrir hönd félagsins, Friðrik Friðriksson frá Prentarafélaginu og Ágústa Kristófersdóttir frá Þjóðminjasafni Íslands kynnir sýninguna Svart á hvítu, umræður og kaffi. Allir velkomnir og ókeypis.